Ágúst Birgisson í FH
Ágúst Birgisson skrifaði í dag undir tveggja og hálfs árs samning við handknattleiksdeild FH. Ágúst er 24 ára línumaður sem leikið hefur með Aftureldingu síðastliðin ár.
„Að fá Ágúst á þessum tímapunkti er gríðarlegur styrkur fyrir okkur FH-inga segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH. Ágúst er leikmaður sem við höfum lengi haft augastað á og kemur til með að styrkja okkur bæði sóknarlega og varnarlega. Við ætlum okkur að koma sterkir til leiks í byrjun febrúar og er Ágúst góð viðbót við okkar hóp. Við erum ekki hættir, við ætlum að styrkja okkur meira, ekki bara núna í janúar heldur einnig fyrir næstu ár“
Við bjóðum Ágúst velkominn í FH