Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

Sumarnámskeið frjálsíþróttadeildar FH 2016 

Hin vinsælu frjálsíþrótta- og leikjanámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH verða haldin í sumar fyrir sex til tíu ára börn (fædd 2006-2010).
Námskeiðin verða haldin á frjálsíþróttavellinum og í nýja frjálsíþróttahúsinu í Kaplakrika og eru í umsjón þjálfara og iðkenda frá Frjálsíþróttadeild FH.
Námskeiðin verða sem hér segir:

1. námskeið 13.júní - 24.júní - 9:00-12:00
2. námskeið 13.júní - 24.júní – 13:00-16:00
3. námskeið 27.júní - 8.júlí – 13:00 -16:00
4. námskeið 2.ágúst -12.ágúst – 9:00-12:00
5. námskeið 2.ágúst -12.ágúst – 13:00-16:00

Boðið er upp á gæslu milli kl. 16 og 17.
Skráning fer fram á www.fhfrjalsar.net og www.fh.is/frjalsar. Einnig er hægt að skrá börnin í Kaplakrika, við upphaf hvers námskeiðs.
Á námskeiðunum kynnast börnin ýmsum greinum frjálsíþrótta og fara í íþróttatengda leiki.
Lögð er áhersla á að börnin hafi með sér hollt nesti.
Námskeiðsgjald er 10.000 kr. og 2.000 kr. afsláttur er veittur ef skráð er á fleiri en eitt námskeið.
Systkinaafsláttur: Greitt er fullt gjald fyrir eitt barn en veittur er 3.000 króna afsláttur fyrir systkini þess.
Nánari upplýsingar eru veittar á www.fhfrjalsar.net og www.fh.is/frjalsar.

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: