Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

Stefna KDFH í jafnrétti kynþátta og fordóma.

Knattspyrnudeild FH leggur mikla áherslu á “Knattspyrna- leikur án fordóma”

þar sem mikil áhersla er lögð á að koma í burtu fordómum úr knattspyrnu,
koma í veg fyrir einelti, og leggja mikla áherslu á drengilegan og heiðarlegan
leik.

Þjálfarar KDFH hvetji leikmenn sína til að leika heiðarlega, enda eru þjálfarar
fyrirmyndir leikmanna.

Að leikmenn KDFH leiki knattspyrnu án rifrilda við dómara leiksins og án
alvarlegra leikbrota.

Að áhorfendur KDFH hvetji leikmenn sína áfram heiðarlega og útiloka öll
niðrandi og meiðandi ummæli í garð dómara og leikmanna inn á vellinum.

Að foreldrar og forráðamenn barna hvetji þau til að leika heiðarlega, mæta
vel á leiki og sýni góðan og drengilegan stuðning og forðist öll niðrandi og
meiðandi ummæli í garð dómara og leikmanna. Foreldrar og forráðamenn eru
jú fyrirmynda barna.

Að KDFH stuðli að því að fjölmiðlar birti jákvæða umfjöllun um leiki KDFH.

KDFH hvetur alla sem koma að knattspyrnu að leggja áherslu á að
knattspyrnan sé leikinn á drengilegan og heiðarlegan hátt og umfram allt að
sýna öðrum þátttakendum virðingu.

KDFH leggur mikla áherslu á að jákvæð og öguð framkoma leikmanna KDFH
ætti að vera markmið sérhvers leikmanna KDFH inn á vellinum.

KDFH mun stefna að því að halda málþing um jafnrétti kynþátta og fordóma á
árinu.

Hvað eru fordómar?

Fordómar eru þegar einhver er áreittur, útilokaður, sniðgengin(n) eða mismunað vegna
útlits, uppruna, kynþáttar, litarháttar, kynferðis, kynhneigðar, skoðana, trúar, fötlunar,
efnahags eða annara aðstæðna.
Því miður er það staðreynd að á Íslandi verða einstaklingar fyrir fordómum og aðskasti
m.a. vegna uppruna síns. Öll þurfum við að leggja okkar af mörkum til að koma í veg
fyrir fordóma í knattspyrnunni og samfélaginu. Með samstilltu átaki getum við áorkað
miklu til þess að uppræta þennan vágest.

Hvað getum við gert?

Ef að einhver einstaklingur í kringum okkur er haldinn fordómum skaltu ekki taka undir
með viðkomandi heldur benda á að þú sér ekki sammála. Þú getur frætt aðra um fordómar
eiga ekki rétt á sér í knattspyrnunni eða annars staðar. Einnig getur þú beðið fólk um að
setja sig í spor þess sem að það fordæmir og reyna að opna augu viðkomandi fyrir þessari
vá. Við eigum að koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur.
Sýnum þeim sem verða fyrir fordómum stuðning og reyndu að liðsinna þeim.
Ef að þú verður fyrir fordómum, mundu að þú stendur ekki ein/einn. Reyndu að finna
einhvern sem stendur með þér og styður þig og þú getur talað við. það geta verið vinir,
foreldrar, þjálfarar eða einhver sem að þú treystir.

Hvað er einelti?

Einelti er að ofsækja einhvern með endurtekinni stríðni, ilkvittnum uppnefnum, ógnandi
árásargjarnri framkomu og útilokun frá félagsskap. Oft er erfitt að greina einelti en það
birtist því miður í flestum hópum í okkar samfélagi. Eineltið birtist t.d. oft í þeirri mynd
að einhver er skilin(n) eftir útundan. Einelti veldur jafnan miklum kvíða hjá viðkomandi
og vanlíðan. Öll þekkjum við einhvern einstakling sem að hefur verið strítt en hefurðu
hugsað hvernig þér myndi líða í hans sporum? Einelti er eitthvað sem að við viljum alls
ekki sjá í knattspyrnunni frekar en annars staðar.

Hvað getum við gert?

Þú getur sleppt því að taka þátt í eineltinu. Þú getur einnig sagt öðrum frá t.d. vinum
þínum að það sé rangt að leggja einhvern í einelti. Börn geta sagt þjálfara, eða öðrum
fullorðnum sem að þau treysta frá eineltinu. Mjög mikilvægt er að sýna þeim sem verður
fyrir eineltinu stuðning með því að ganga til liðs við hann/hana og mótmæla svona
framkomu. Ef að þú gerir ekkert og þegir heldur viðkomandi að þér finnist þetta sllt í lagi
og þú tekur þar með þátt í eineltinu. Hvernig fyndist þér ef svona væri komið fram við
þig?
Ef að þú verður sjálfur fyrir einelti, mundu að þú stendur ekki ein/einn. Reyndu að finna
einhvern sem stendur með þér og styður þig og þú getur talað við. Það geta verið vinir,
foreldrar eða þjálfarinn, einhver sem að þú treystir.
knattspyrnudeild FH

byggt á heimildum Leikur án fordóma samvinnuverkefni UEFA, KSÍ og
Mastercard.

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: