Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

Hér má sjá helstu ágrip framkvæmda  í Kaplakrika frá árinu 1959

1959 - FH úthlutað lóð við Hraunhóla í Engidal.

1964 - FH lendir í skipulagsdeilum við Hafnarfjarðarbæ. Deilan stendur yfir næstu 3 árin.

1967 - FH úthlutað u.þ.b. 6 hektara landssvæði í Kaplakrika.

1968 - Framkvæmdi hefjast þann 15. mars við grasvöll. 10.000 rúmmetrar sprengdir. Þegnskapur FH-inga var einstakur.

1970 - Undirbúningur hafinn að byggingu malarvallar og frjálsíþróttaaðstöðu.

1973 - Malarvöllur og frjálsíþróttasvæðið tekin í notkun. Síðan hefur FH leikið alla heimaleiki sína í knattspyrnu í Kaplakrika.

1975 - Framkvæmdir við grasvöll hófst að nýju og var völlurinn tyrfður um haustið á einni helgi.

1976 - Grasvöllurinn í Kaplakrika vígður 16. júlí.

1983 - Fyrsti hluti grasæfingasvæðis ofan við malarvöllinn tekið í notkun.

1984 - Framkvæmdir hófust við skjólmön, búningsaðstaða og stúka við grasvöll gerð fokheld.

1986 - Annar hluti grassvæðis tekinn í notkun.

1987 - Frjálsíþróttaaðstaða og malarvöllur endurbættur.

1987 - FH áskotnaðist um 250 fm hús, sem var flutt á svæðið og gert að áhaldahúsi m.m..

1987 - Varanleg fundaraðstaða undir stúku tekin í notkun 31. desember.

1988 - Búningsaðstaða í stúkubyggingu tekin í notkun 27. maí. Fundaraðstaða á efri hæð stúkubyggingar tekin í noktun í júní. Nýtt yfirlag á malarvöllinn.

1988 - Malarvöllurinn flóðlýstur.

1989 - Fyrsta skóflustunga tekin að nýju íþróttahúsi 11. febrúar.

1990 - Ein stærstu tímamót í sögu félagsins. Nýtt og glæsilegt íþróttahús og bætt félagsaðstaða tekin í notkun 31. mars. Gengið frá umhverfi  knattspyrnuvalla að kröfu UEFA. FH leikur fyrsta Evrópuleik sinn í Kaplakrika.

1991 - Blaðamannaskýli byggt og vígt 8. júní. Þrekæfingaaðstaða í áhaldahúsi tekin í notkun.

1992 - Gufubað í stúku vígt 12. desember.

1993 - Endanlegur frágangur á jöðrum nýs grassvæðis og nýs kastsvæðis lokið. Um það bil 8.500 trjáplöntur gróðursettar.

1994 - Alls 10.000 trjáplöntur á svæðinu haustið 1994.

1994 - Endurbætt þrekæfingaaðstaða í Eimskipafélagshúsinu tekin í notkun í október.

1995 - Girðing sett umhverfis grasvöllinn. Gaflarar gefa leikmannaskýli.

1996 - Vallarklukka sett upp við grasvöll. Hönnun og teiknivinna vegna nýs frjálsíþróttavallar hafin.

1997 - Fyrsta skóflustunga að nýjum frjálsíþróttavelli tekinn 7. júní. Hönnun og teikningar vegna nýs gervigrasvallar hafinn.

1998 - Fyrsta skóflustunga að nýjum gervigrasvelli tekinn 28. febrúar. Nýr og glæsilegur frjálsíþróttavöllur vígður 17. maí. Þrekstöð FH stækkuð verulega.

1999 - Girðing sett umhverfis frjálsíþróttavöllinn. Keypt vél til að hreinsa upp gervigrasvöll og tartanbrautir.

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: