Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

Skráning í sumarnámskeið (s.s. knattspyrnuskóla og frjálsíþróttanámskeið)

Nori - Skráningar og greiðslukerfi

Eins og lesa má um í Tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ hér til vinstri samdi Hafnarfjarðarbær í fyrrasumar við fyrirtækið Dynax um umsjón með öllum niðurgreiðslum bæjarins til íþróttamála yngri flokka innan bæjarfélagsins.

Þetta hefur það í för með sér að skráningar í alla flokka, hjá öllum deildum FH fer fram í gegnum vef Hafnarfjarðarbæjar.

Skráningin fer fram í gegnum Mínar síður á vef bæjarins.

Nýskráning forráðamanns:

  • Einfalt er að skrá sig inn í kerfið og er það gert með því að fara á Mínar síður hjá Hafnarfjarðarbæ eða smella á myndina hér að neðan.


  • Þar skráir forráðamaður sig inn í kerfi bæjarins eða stofnar nýjan aðgang.
  • Athugið að aðeins börn með lögheimili í Hafnarfirði birtast í listanum.

Skráning iðkenda:

  • Forráðamaður velur merki FH og fer beint inn á sína síðu í Nóra án frekari skráningar notendanafns/lykilorðs. (Skráning á Mínar síður gildir sem skráning í Nóra)
  • Forráðamaður skráir síðan iðkanda á námskeið og getur þá valið um að haka í "ÍÞRÓTTA OG TÓMSTUNDASTYRKUR". Nóri sækir þá upphæð styrks til Hafnarfjarðarbæjar og birtir - og dregur frá námskeiðsgjaldi. Mismuninn þarf forráðamaður að greiða.
  • Skráning verður ekki virk nema að gengið sé endanlega frá greiðslu, hvorki í Nóra né á styrk frá Hafnarfjarðarbæ.

Iðkendur búsettir utan Hafnarfjarðar:

Þar sem forráðamenn iðkenda sem búsettir eru utan Hafnarfjarðar geta eðlilega ekki skráð sig inn á þjónustuvef bæjarins er þeim bent á leiðbeiningar hér til vinstri.

Fyrir frekari upplýsingar og/eða leiðbeiningar er best að senda tölvupóst á bryndis@fh.is

 

ATH! Mikilvægt er að forráðamenn skrái iðkendur strax til að nýta sér heildarniðurgreiðslur frá Hafnarfjarðarbæ.
Það er á ábyrgð forráðamanna að skrá iðkendur strax, að öðrum kosti geta þeir misst niðurgreiðslu frá bænum sem reiknast fyrir hvern mánuð. 

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: