Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

Íþróttaskóli FH 2014 - 2015

Þann 12. september hefst að nýju Íþróttaskóli barnanna hér í Kaplakrika. Skólinn verður með sama sniði og í fyrra og lagt upp úr því að krakkarnir eigi skemmtilega og þroskandi leikstund. Skólinn verður alla laugardaga fram að jólum og heldur svo áfram eftir áramót. 

Farið verður í marga leiki og fá börnin að prufa nánast allar íþróttir sem í boði eru. 2-3 ára börn mæta kl 09:30 - 10:30. 4-5 ára börn mæta kl 10:30 - 11:30 . Önnin kostar 13.000 kr og er öllum frjálst að prufa.

Skráning í íþróttaskólann fer fram eftir hvern tíma.

Umsjónarmenn skólans eru Eva Þórunn Vignisdóttir, Sigurður Víðisson, Unnur Hjartardóttir og Brynjar Sigþórsson. 

Bestu kveðjur, starfsfólk íþróttaskóla FH.

 

Íþróttaskóli FH á Facebook

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: