DAVÍÐ ÞÓR VIÐARSSON ER ÍÞRÓTTAMAÐUR FH 2015
Að venju var á gamlársdag útnefndur íþróttamaður FH við hátíðlega athöfn í Sjónarhól.
Knattspyrnumaðurinn Davíð Þór Viðarsson er íþróttamaður FH 2015.
Davíð Þór Viðarsson er fyrirliði Íslandsmeistara FH í knattspyrnu. Davíð lék alla leiki FH í sumar að einum undanskildum. Davíð var valinn besti leikmaður FH á lokahófi knattspyrnudeildar síðastliðið haust.
Við óskum Davíð innilega til hamingju með árangur sinn á árinu og útnefninguna íþróttamaður FH.