Einar Rafn markahæstur og valinn í úrvalslið Olísdeildarinnar!
Einar sem hefur allan sinn feril leikið í stöðu hægri hornamanns var fenginn til að leysa hægri skyttu stöðuna í upphafi tímabils. Hann hefur svo sannarlega slegið í gegn í þeirri stöðu í vetur.
Hann var svo í dag valinn í lið ársins sem valið er af þjálfurum liðanna í Olís deildinni ásamt því að vera markahæstur allra leikmanna í deildinni.
FH.is óskar að sjálfsögðu Einari til hamingju með viðurkenninguna og markakóngstitilinn.