FH er með 2 fulltrúa í U18 landsliðsúrtaki kvenna
Valin hefur verið úrtakshópur í U18 kvk landslið í handbolta. FH er með 2 fulltúa þar sem eru þær Aþena Ríkharðsdóttir og Björg Bergsveinsdóttir. Æfingar hefjast hjá þeim mánudaginn 14 mars. Hkd FH óskar stúlkunum til lukku með þennan áfanga og mun þetta val vonandi hvetja þær ennþá meir við æfingar og keppni.