Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

FH - Fylkir á föstudag

Mótherji: Fylkir
Hvar: Kaplakrikavöllur 
Hvenær: Föstudaginn 24.júní
Klukkan:19:15 

Það er alvöruleikur í Kaplakrika næsta föstudagskvöld. Við fáum Fylkismenn í heimsókn í Kaplakrika. Þetta verður heldur betur hörkuleikur og mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning.

Mætum tímanlega á völlinn og látum vel í okkur heyra.

Allir á völlinn og áfram FH!

 


BAKHJARLAR: 
Bakhjarla herbergi opar klukkutíma fyrir leik þar sem veitingar verða í boði ásamt því að einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er. Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi ásamt veitingasölu.

f8e0bb8373e7934e
FH – Radio: 
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á föstudag. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net 

11014939_921601731196372_4605329185026370183_n
Pyngjan 
Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina.
Pyngjan er app sem hægt er að nota til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur: http://www.dhs.is/

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: