FH - ÍA á sunnudag
Mótherji:ÍA Hvar: Kaplakrikavöllur Hvenær: Sunnudaginn 8.maí Klukkan:19:15
Fyrsti heimaleikur sumarsins er á sunnudaginn gegn Skagamönnum. Þetta verður hörkuleikur og mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning. Mætum tímanlega á völlinn og látum vel í okkur heyra. Allir á völlinn og áfram FH!
![20150805-DSC_3294 20150805-DSC_3294](/media/w500/c84f53c27130ffc.jpg)
BAKHJARLAR:
Þeir sem eru nú þegar Bakhjarlar eða vilja skrá sig geta sótt Bakhjarlakort á skrifstofu knattspyrnudeildar í Kaplakrika fimmtudaginn 5.maí (Uppstigningardag) kl 11:00 – 13:00, föstudag á skrifstofutíma og á laugardag kl 11:00 – 13:00.
Við mælum með því að sem flestir sæki Bakhjarlakortin fyrir fyrsta leik því það er hætt við því að það myndist löng röð við Bakhjarlainngang á fyrstu leikjum sumarsins.
Við munum halda áfram með það fyrirkomulag sem var í Sjónarhól í fyrra. Það er að segja, salurinn opnar fyrir Bakhjarla klukkutíma fyrir leik þar sem matur verður í boði ásamt því að einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er. Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi ásamt veitingasölu.
![IMG_20160506_144700 IMG_20160506_144700](/media/w500/7795945cd234871.jpg)
GRILL - Mætum tímanlega!!
Það verður heldur betur líf og fjör fyrir leikinn gegn ÍA á sunnudag. Klukkutíma fyrir leik verða grillaðir hamborgarar og Fish and chips vagninn verður á staðnum. Mætum tímanlega á völlinn á sunnudag.
![IMG_2124 IMG_2124](/media/w500/1d166a4801f9031.JPG)
FH – Radio:
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á sunnudag. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net
![11014939_921601731196372_4605329185026370183_n 11014939_921601731196372_4605329185026370183_n](/media/w500/41b65a7350f53c.jpg)
Pyngjan:
Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina.
Pyngjan er app sem hægt er að nota til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur: http://www.dhs.is/