Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

Stórleikur: FH - Valur á sunnudag

Mótherji: Valur
Hvar: Kaplakrikavöllur 
Hvenær: Sunnudaginn 18.sept
Klukkan: 14:00

Það er komið að því. stórleikur í Kaplakrika sunnudaginn 18.sept þegar Valur kemur í heimsókn.

Leikurinn hefst klukkan 14:00.  Kæru FH-ingar mætum tímanlega á völlinn að sjálfsögðu í hvítu og styðja liðið til sigurs í þessum mikilvæga leik.


ÁFRAM FH!

 

20160720-DSC_5342


BAKHJARLAR: 
Við munum halda áfram með það fyrirkomulag sem var í Sjónarhól í fyrra. Það er að segja,
salurinn opnar fyrir Bakhjarla klukkutíma fyrir leik þar sem matur verður í boði ásamt því að
einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er.
Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig
stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi ásamt veitingasölu.

 

f8e0bb8373e7934e
FH – Radio: 
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á sunnudag. Slóð á útsendinguna er á
facebook síðu FHingar.net.

11014939_921601731196372_4605329185026370183_n

Pyngjan:

Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á
leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina.
Pyngjan er app sem hægt er að nota til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild
karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur: http://www.dhs.is/

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: