Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

Stórleikur í forkeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudag

Mótherji: Dundalk FC
Hvar: Kaplakrikavöllur 
Hvenær: Miðvikudaginn 20.júlí
Klukkan: 19:15
Miðaverð: 2.000 kr og 1.500 kr fyrir Bakhjarla

Síðari leikur FH og Dundalk fer fram á miðvikudaginn, 20. júlí, í Kaplakrika, en leikurinn er liður í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Fyrri leikur liðanna var spilaður í Írlandi á miðvikudaginn, en lokatölur urðu 1-1 jafntefli. Írarnir komust yfir í síðari hálfleik, en Skotinn Steven Lennon jafnaði fyrir FH í síðari hálfleik.

FH er því í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn á miðvikudaginn ,en hann verður spilaður klukkan 19.15 í Kaplakrika. Sigurliðið mætir annað hvort Bate Borisov frá Hvíta-Rússlandi eða SJK Seinajoki frá Finnlandi. 

Dundalk er atvinnumannalið í Írlandi, en þeir hafa unnið deildina tvö ár í röð. Þeir unnu deildina í fyrra með ellefu stiga mun, en nú eru þeir með sex stiga forskot á Cork City, sem á þó leik til góða, þegar 18 leikir af 33 eru búnir. 

Þjálfari liðsins er Stephen Kenny, 44 ára gamall Íri sem hefur þjálfað liðið frá árinu 2013, en áður þjálfaði hann lið á borð við Shamrock Rovers og FH-banana í Dunfermline. Einnig hefur hann þjálfað Longford, Bohemians og Derry. 

Þeir hafa spilað nítján leiki í forkeppni Meistaradeildarinnar, en þeir hafa unnið þrjá, gert fjögur jafntefli og tapað tólf leikjum. Dundalk var eitt fyrsta írska liðið til að spila í Evrópu og var fyrsta írska liðið til að fara áfram þrjár umferðir í Evrópukeppni.

Liðið er nánast að öllu leyti byggt á írskum leikmönnum, en tveir Norður-Írar eru í liðinu. Þeir spila á gervigrasi í Írlandi, en sá völlur var ekki upp á marga fiska.  Aðal styrktaraðili klúbbsins er ávaxtafyrirtækið Fyffes, en þeir eru framan á búningum liðsins.

Við hvetjum alla FH-inga og stuðningsmenn íslenska fótboltans, unga sem aldna, að skella sér á völlinn á miðvikudag því þarna er risastórt tækifæri fyrir íslenskt lið að fara lengra í Evrópukeppni. 

Miðasala hefst klukkan 18.00 á miðvikudag, en leikurinn sjálfur hefst klukkan 19.15 á miðvikudag. 

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: