Nú höfum við hjá Frjálsíþróttadeild F.H. komið okkur upp mjög góðri aðstöðu. Það hefur tekið mörg ár og mikla vinnu. Það er að þakka nokkrum framtakssömum einstaklingum og mikilli sjálfboðavinnu.
|
|
Innanhúsaðstaða Frjálsíþróttadeildin hefur nú yfir að ráð fullbúinni frjálsíþróttahöll með 200m hring (4 brautir) og 60m braut (8brautir), 2 langstökksgryfjur, stangarstökk, 2 hástökk og fullbúinni aðstöðu fyrir kúluvarp. Í höllinni er m.a. er hægt að æfa kastgreinar allt árið um kring. Leita þarf ansi víða í Evrópu til að finna jafn góða aðstöðu og frjálsíþróttamönnum stendur til boða í Krikanum.
|
|
Hlaupabrautin
- 6 brautir
- 400m hringur
- Merkingar fyrir allar skráðar vegalengdir
- Langstökksgryfja
- Stangastökksaðstaða á 4. stöðum
- Spjótkastatrena og grasvöllur til að kasta á.
|
|
Lyftingaklefinn * Salurinn inniheldur öll þau tæki, lóð og stangir sem þarf til að geta þjálfað þá vöðva sem þarf til að verða "alvöru íþróttamenn" eða "þjálfa upp góðan sprengikraft". |
|
Súkkulaði aðstaða Þeir sem eru svo að stefna að því að verða svolítið flottir á vellinum, þá eru speglar og handlóð handa þeim. |
|
Kastvöllurinn Kastbúr. 2. kasthringir fyrir kúluvarp. 3. kasthringir fyrir kringlukast, sleggjukast og lóðakast.
|
|
Búnings og salernisaðstaða 2 búningsklefar með salerni og sameiginlegri sturtuaðstöðu |
|
Tímatakan Rafmagnstímataka. |
|
Fundarsalur Hér eru haldnir fundir og skemmtanir. |
|
Upphitunarsvæði Á stærri frjálsíþróttamótum er grasflöturinn fyrir ofan völlinn notað sem upphitunarsvæði. |
|
Umgengni Allir þurfa að fara eftir reglum vallarins:
Gangið ekki yfir völlinn. Notið göngustígana. Munið eftir ruslafötunum. Sitjið ekki á girðingunni.
|