Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

ÍÞRÓTTASKÓLI FH - KAPLAKRIKA
Hreyfinám í jákvæðu umhverfi
Fyrir börn 2ja til 6 ára

Íþróttaskóli fyrir alla

Íþróttaskóli FH hefur starfað frá árinu 1995 og er markmið hans að bjóða börnum á aldrinum 2-6 ára upp á fjölbreytt og markvisst hreyfinám sem tekur mið af þroskaþáttum barna. Við komum til með að vinna á stöðvum með fjölbreyttu hreyfiálagi þar sem börnin hafa kost á að svala hreyfiþörf sinni í jákvæðu og hlýlegu umhverfi.

Efling þroskaþátta í fyrirrúmi

Við minnum á að skólinn er ætlaður stúlkum jafnt sem piltum. Við komum til með að vinna út frá öðrum forsendum er gerðar eru í íþróttagreinum íþróttafélaga. Þroskaþættir barnsins sitja í fyrirrúmi eins og áður sagði og út frá þeim komum við til með að vinna. Vinna með félagsþroska og samvinnu kemur til með að verða stór þáttur í hverjum tíma.

Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi. Ekki verður sóst eftir mikilli keppni eða afrekum tengd keppni það er nægur tími til stefnu til slíkra verka. Hreyfinám og efling þroskaþátta barnsins sitja í fyrirrúmi.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að grunnþjálfun, þar sem áhersla er lögð á alhliða líkams- og hreyfiþroska og félagslega gott og jákvætt umhverfi, hefur lykilþýðingu fyrir einstaklinginn þegar fram í sækir. Við í íþróttaskólanum munum leitast við að skapa slíkt umhverfi og með hjálp foreldranna ætlum við að ná settu marki.

Foreldrar virkir í leik og starfi

Nauðsynlegt er að foreldrar taki virkan þátt í leik og starfi og aðstoði okkur og börnin eftir þörfum. Hvað hef ég gert fyrir barnið mitt í dag til að efla þroska þess? Þetta er setning sem við viljum að hljómi í huga okkar á hverjum degi. Laugardagur í íþróttahúsinu getur verið einn þeirra.
Finndu barnið í sjálfum þér og styrktu tengslin við barnið þitt. Aðstoðaðu barnið í leik og starfi svo þú megir kynnast barninu þínu enn betur og verða betri uppalandi.
Sé barnið eða þú sem foreldri óánægt eða ekki sátt við ákveðna hluti, þá láttu okkur vita. Það er beggja hagur að öllum líði vel. Sé það ánægt og líði vel er einnig nauðsynlegt að láta í sér heyra.

Fatnaður og nesti

Þægilegt er að börnin séu í léttum fatnaði (íþróttafatnaði). Það hefur reynst ágætt að fá börnin til að vera berfætt frá og með fyrsta tíma. Gott væri að foreldrar venji börnin á að ganga frá fötum sínum (klæða sig úr og í), hengja þau upp á snagana. Gefið ykkur góðan tíma. Það er nám (hreyfinám) að klæða sig úr og í.

Æskilegt er að börnin hafi nesti meðferðis, s.s. hreinan ávaxtasafa og kornabrauð. Vatn á flösku er eitt af því besta sem völ er á. Foreldrar verða fljótt vör við það að börnin verða bæði þyrst og svöng eftir mikla hreyfingu. Líkaminn kallar á næringu og vatn til að mæta vökvatapi sem hann verður fyrir. Verum viðbúin þessum þörfum barnanna.

Skólatími og kennarar

Mætið stundvíslega þannig að börnin séu tilbúin á tilsettum tíma.
Skólatími er á:
Laugardögum kl. 09:30 fyrir 2-3 ára
Laugardögum kl. 10:30 fyrir 4-6 ára.

Skólagjald og ýmsar upplýsingar

Skólagjald er 10.000 kr. fyrir áramót og hægt er að greiða með reiðufé eða greiðslukortum við skráningu.
Það er von Aðalstjórnar FH að eftir veru í Íþróttaskólanum hafi börnin fundið sér íþróttagrein til að stunda innan FH.
 

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: