FH - knatthús
Risinn
Risinn er yfirbyggt knatthús á stærð við hálfan knattspyrnuvöll. Húsið er ekki upphitað en er klætt með dúki og því mjög gott að stunda æfingar þar inni í skjóli. Stærðin á knattspyrnuvellinum hentar mjög vel fyrir flesta hópa.
Útleigutímarnir eru frá 22:00 - 23:00 alla virka daga og frá kl 20:00 - 23:00 á sunnudögum, klst hver tími. Einnig eru lausir hádegistímar á virkum dögum og hafa þeir verið vinsælir hjá fyrirtækjum og skólum.
Leigugjald
8.500 kr fyrir hálfan völl
15.000 kr fyrir heilan völl

Dvergurinn
Dvergurinn er nýtt yfirbyggt knatthús 51*25 á stærð. Í húsinu verður ylur en ekki fullt hitað. Húsið er eins og Risinn klætt með dúk og því mjög gott stunda æfingar þar í skjóli. Stærðin á húsinu hentar vel fyrir hópa, æfingar og ýmis önnur tækifæri.
Útleigutímar eru:
Virkir dagar frá kl 20:00 til 23:00
Laugardagar frá kl 16:00 til 23:00
Sunnudagar frá 18:00 til 23:00
Leigugjald
Er mismunandi eftir tímasetningu en á bilinu 7.000 – 12.000 kr
Til að fá frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Axel Guðmundsson í gegnum axel@fh.is