Aðal styrktaraðili FH er:

actavis_logo

Næsti leikur: 

VEISLUSALUR - SJÓNARHÓLL

Í íþróttahúsi Kaplakrika er stór veislusalur (Sjónarhóll) sem tekur 280 manns í sæti. Hægt er að skipta honum í 2 sali og tekur vestari 90 – 100 manns í sæti en salurinn nær bílastæðunum að austan tekur 150 manns í sæti.

Rúmgott eldhús og bar fylgir útleigu, einnig borðbúnaður fyrir 250 manns.  Einnig eru 2 ísskápar, ofn, uppþvottavél o.fl.

Fyrir framan salina er móttökusalur, anddyri og 3 wc. Hægt er að ganga út úr veislusölunum að norðanverðu (snýr að fótboltavellinum) ef einhverjir þurfa að reykja eða fá sér frískt loft. 

 

Hálfur salur

Allur salurinn

 

Virka daga

50,000

80,000

 

Föstud.-sunnud.

80,000

120,000

 

Rauðir dagar

80,000

120,000

 

Frídagur daginn eftir

80,000

120,000

 

Fermingar ( miðast við 4 tíma)

50,000

80,000

 

Brúðkaupspakki

90,000

140,000

Fá salinn kvöldið áður

Ef óskað er eftir salnum kvöldið áður

30,000

30,000

Viðbót við salarleigu

Starfsfólk gangi frá borðum og stólum

25,000

25,000

 

 

Ef gestir eru 90 og færri er aðstoðarmanneskja sem er greitt sér. En ef gestir fara yfir 90 höfum við þá reglu að tvær aðstoðarmanneskjur fylgja salnum sem hver um sig hefur 3500 kr á tímann og er greitt er fyrir sérstaklega. Ávallt skal vera starfsmaður í salnum meðan leigutaki er í salnum.

Leiga fyrir salinn skal greidd að fullu eigi síður en 10 dögum eftir staðfestingu á pöntun eða samkvæmt samkomulagi.  Staðfestingu skal senda á elsa@fh.is  Upphæð leggist inn á bankanr. 0545-26-9401 og kt. FH 540169-2769.

Staðfestingargjald er kr.20.000 og  salurinn skal fullgreiddur viku fyrir leigu.Staðfestingargjald er óafturkræft.  

Veislunni á að vera lokið kl. 02:00 og allir farnir úr húsi kl. 03:00.

Tvær stærðir af borðum þ.e. 80x160 cm og 80x140 cm vegna dúka.

Leigutakar geta  komið með mat og kökur o.sv.frv.

Þegar veislan er búin þarf að þvo leirtau, hnífapör, könnur, potta og stjaka og setja á sinn stað. Þrífa borðin og setja þau og stólana upp á kerrur og sópa gólfið. Við skúrum gólfið í salnum, eldhúsinu, móttökusalnum, anddyri og wc.  Ef leigutaki gengur ekki frá borðum og stólum eins og um er talað hér að þá rukkum við hann um 25.000.- kr.  sem vinnuframlag okkar.

Upplýsingar sendist á elsa@fh.is eða bryndis@fh.is

Styrktaraðilar íþróttadeilda FH eru: